Utanríkisráðherra fræddist um flóttamannavandann í Írak

Ingibjörg Sólrún ásamt Guterres.
Ingibjörg Sólrún ásamt Guterres.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, hitti António Guterres, aðalframkvæmdastjóra Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna, á einkafundi í tengslum við leiðtogafund Afríkusambandsins í Gana. Segir utanríkisráðuneytið, að sérstakt tilefni fundarins hafi verið flóttamannavandi Íraka og versnandi aðstæður almennings í landinu.

Að sögn ráðuneytisins staðfesti Guterres, að 2 milljónir manna séu nú án athvarfs og á flótta í Írak og aðrar 2 milljónir á flótta utan landamæranna í nágrannaríkjum.

Þau Gurerres og Ingibjörg Sólrún ræddu ítarlega viðbrögð alþjóðasamfélagsins og ráðherrann fræddist um hvers konar aðgerðir Flóttamannastofnun SÞ telji æskilegastar til að bæta aðstæður fólkins sem í hlut á.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert