Gekk í skrokk á starfsmanni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út að nýbyggingu í Mosfellsbæ í gærmorgun þar sem grunur lék á að vinnuveitandi hefði gengið í skrokk á einum starfsmanni sínum. Starfsmaðurinn var fluttur á slysadeild Landspítala – háskólasjúkrahúss þar sem gert var að sárum hans. Maðurinn var ekki alvarlega slasaður.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er málið til rannsóknar og ekki hægt að staðfesta tildrög árásarinnar. Vinnuveitandinn hafði ekki verið yfirheyrður síðdegis í gær.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka