Fjögurra bíla árekstur á Höfðabakkabrú

Fjögurra bíla árekstur varð á Höfðabakkabrú til móts við Húsgagnahöllina á sjöunda tímanum í kvöld. Að sögn lögreglu var um aftanákeyrslur að ræða. Tveir voru fluttir á slysadeild með sjúkrabílum, ekki liggur fyrir hversu alvarleg meiðsl þeirra eru. Sá þriðji ætlaði sjálfur að leita sér aðstoðar.

Ökumennirnir voru allir einir í bílunum að sögn lögreglu. Kalla þurfti eftir dráttarbíl til þess að draga tvær bifreiðar á brott.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka