Fimm bíla árekstur á Miklubraut

Fimm bíla árekstur varð á Miklubraut um kl. 16:20. Að sögn lögreglu hafa sjúkrabílar verið sendir á staðinn, en ekki liggur fyrir með meiðsl fólks. Miklar umferðatafir eru á svæðinu í kring og sjá lögreglumenn um að stýra umferð. Árekstrarnir urðu á afrein sem liggur frá Skeiðarvogi og inn á Miklubraut.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka