Krónan lækkar um 2,6%

mbl.is/Júlíus

Gengi krónunnar hefur lækkað verulega í morgun eða um 2,6%. Gengisvísitalan var 133,56 stig við lokun markaða í gær en stendur í 136,5 stigum nú. Hæst hefur vísitalan farið í 137,45 stig í dag. Ef gengisvísitalan hækkar þá lækkar gengi krónunnar.

Viðskipti á gjaldeyrismarkaði nema 37 milljörðum króna það sem af er degi. Bandaríkjadalur stendur nú í 67,90 krónum, evran 104,70 krónur og pundið 136,80 krónur.

Raungengi, mælt sem hlutfallsleg þróun verðlags hér á landi samanborið við helstu viðskiptalönd, lækkaði um 2,5% í febrúar frá fyrri mánuði samkvæmt mælingu Seðlabanka Íslands.

Vísitala raungengis er nú 101,3 stig og hefur ekki verið lægri síðan í desember 2006. Raungengi krónunnar fór hækkandi framan af síðasta ári en viðsnúningur varð í júlí þegar lausafjárkrísan byrjaði að hafa áhrif til lækkunar gengis krónunnar á síðari hluta árs, samkvæmt Morgunkorni Glitnis.

„ Síðan í júlí hefur raungengið lækkað um 10,8% en á sama tíma hefur nafngengi krónunnar lækkað um 16%. Lægra raungengi hefur öllu jafna jákvæð áhrif á viðskiptajöfnuð þar eð samkeppnisstaða útflutningsgreina og þeirra greina sem eru í samkeppni við innfluttar vörur batnar ásamt því að dýrari innflutningur ætti að slá á einkaneyslu. Þannig eykur lækkandi raungengi samkeppnishæfni þjóðarbúsins í alþjóðlegu tilliti," að því er segir í Morgunkorni Glitnis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK