[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Markaður

info Uppl. um fyrirtæki:

Myntbreyta

Mynt Fjárhæð
ISK - Íslensk króna  ISK
USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR
GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD
DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK
SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF
JPY - Japanskt jen  JPY
Heimild: Arion banka

Tenglar

Innlendir
Erlendir
Vextir
Verðbréfasjóðir
Vísitölur

Í samstarfi við Arion banka

Hún Kaupþings.

Hún Kaupþings.

Viðskipti | mbl.is | 16.6.2009 | 10:06

Lán til starfsmanna Kaupþings ekki afskrifuð

Stjórn Nýja Kaupþings banka ætlar ekki að afskrifa lán til starfsmanna vegna hlutabréfakaupa á meðan kæra hluthafa vegna lánanna er til meðferðar hjá sérstökum saksóknara. Lánin eru enn á bókum bankans og hafa ekki verið afskrifuð.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stjórn bankans. Þar er vísað til álita tveggja utanaðkomandi lögfræðinga, Viðars Más Matthíassonar, lagaprófessors frá 12. nóvember í fyrra og Harðar Felix Harðarsonar hrl. frá 15. janúar og 3. mars 2009, þar sem fram kemur, að stjórn Nýja Kaupþings banka hafi ekki lagaheimildir til að rifta þeirri ákvörðun stjórnar gamla Kaupþings, að fella niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna á lánum vegna hlutabréfakaupa.

„Forsaga málsins er sú að stjórn gamla Kaupþings ákvað þann 25. september 2008 að fella niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna bankans vegna lána til hlutabréfakaupa. Samtals náði þessi niðurfelling til persónulegra ábyrgða að upphæð tæpum 10,5 milljörðum króna. Tæpur helmingur þeirrar niðurfellingar eða um 4,9 milljarðar króna var niðurfelling á persónulegum ábyrgðum sjö þáverandi æðstu stjórnenda bankans. Lánin nema í heild 47,3 milljörðum króna til 130 starfsmanna. Meirihluti lánanna var til einstaklinga en hluti þeirra var til eignarhaldsfélaga í eigu starfsmanna. Hluti lánanna var tryggður með persónulegum ábyrgðum, en stærstur hluti þeirra var eingöngu tryggður með veði í sjálfum hlutabréfunum," segir í tilkynningu bankans.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í gær
Laugardaginn 4. september
Föstudaginn 3. september
Fimmtudaginn 2. september