Linda Pé lokar Baðhúsinu

Linda Pétursdóttir hættir reksti Baðhússins.
Linda Pétursdóttir hættir reksti Baðhússins.

„Því miður hefur þetta verið sorgarsaga í Smáralind frá upphafi til enda í um eitt ár. Við lokuðum húsnæðinu í Brautarholti í desember í fyrra með loforð frá Reginn upp á vasann um að við gætum opnað fyrir jólin 2013. Það gekk ekki eftir, en loforð kom í staðinn um opnun um áramót, sem stóðst ekki heldur. Við misstum því strax í byrjun af mikilli jólasölu og raunar af öllum viðskiptum í janúar að auki og eins og allir sem stunda líkamsrækt vita, skiptir janúar höfuðmáli í þessum rekstri en þá fer bróðurpartur allrar sölu næsta árs fram,“ segir Linda Pétursdóttir, eigandi Baðhússins, sem segir að þegar loksins hafi tekist að opna um miðjan janúar hafi húsnæðið  verið allt annað en tilbúið og aðeins afhent í hlutum langt fram á vor.

„Hingað komu viðskiptavinir okkar í hálfklárað húsnæði með iðnaðarmenn andandi ofan í hálsmálið á þeim og við þurftum í raun að hefja reksturinn á sífelldum afsökunum, afsláttar- og endurgreiðslum og uppsögnum kvenna sem skiljanlega voru ekki sáttar við stöðu mála. Rekstrargrundvellinum var því kippt undan okkur strax í byrjun og ekkert sem ég gat gert.“

Linda segir að ástandið hafi lítið skánað eftir því sem leið á árið.

„Hér var allt hálfklárað og konur sem komu í jógatíma, í lúxus dekurmeðferðir eða einfaldlega til afslöppunar, þurftu að vera hér undir dynjandi hamarshöggum, hávaða í höggborvélum og vinnuvélum, nokkuð sem fær ekki nokkurn mann til að slaka á. Um þverbak keyrði svo þegar vinna hófst við byggingu turnsins við Smáralind sem þýddi gríðarlegar truflanir vegna byggingarframkvæmda og konur hafa hrökklast héðan nánast daglega auk þess sem varla hefur verið hægt fyrir starfsfólk að sinna sínu hlutverki vegna hávaða og áreitis. Við þessar aðstæður er ekki hægt að reka Baðhúsið,“ segir Linda.

Hún segir að leigusali hafi ekki viljað taka tillit til þess tjóns sem ítrekaðar seinkanir á afhendingu, ófullnægjandi ástand húsnæðis og mikill hávaði vegna framkvæmda hafi valdið  rekstrinum. 

„Ég er miður mín yfir að þurfa að taka þessa ákvörðun en ég hef nú þegar lagt allt mitt í fyrirtækið í þeirri trú að húsnæðið myndi komast í fullnægjandi ástand tímanlega þannig að hér væri hægt að reka heilsulind fyrir konur. Þetta eru sorgleg tímamót  og mér líður eins og ég hafi verið plötuð og fengin hingað á fölskum forsendum. Mér þykir þetta ákaflega miður einkum vegna frábærs starfsfólks Baðhússins og viðskiptavina minna til margra ára. Ég reyndi fram á síðustu stundu að ná samningum sem hefðu getað leyst málið en nú í morgun varð mér ljóst að það yrði ekki og þá tók ég þá afar erfiðu ákvörðun að loka dyrunum að Baðhúsinu.“  

Allir viðskiptavinir Baðhússins sem eiga kort í líkamsrækt munu geta nýtt kortin út gildistímann hjá Sporthúsinu sem er í næsta nágrenni Baðhússins. 

Linda Pétursdóttir stofnaði Baðhúsið 1994, þá aðeins 24 ára gömul. …
Linda Pétursdóttir stofnaði Baðhúsið 1994, þá aðeins 24 ára gömul. Fyrstu þrjú árin var Baðhúsið til húsa í Ármúla, þaðan sem það flutti í Brautarholt en þessar myndir voru teknar í Smáralind. mbl.is/Ómar Óskarsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál