Linda Pé kannar réttarstöðu sína

Linda Pétursdóttir
Linda Pétursdóttir

„Það hefur aldrei talist stórmannlegt að tala gegn betri vitund en að milljarða fasteignarisi skuli leggjast svo lágt að ráðast á lítið fyrirtæki eins og Baðhúsið af þessu afli og reyna að gera mig og starfsfólk Baðhússins að ósannindafólki er með ólíkindum,“ er haft eftir Lindu Pétursdóttur, eiganda Baðhússins, í fréttatilkynningu. „Þetta eru furðulegar yfirlýsingar sem koma frá forstjóra Regins um að staðið hafi verið við alla samninga gagnvart Baðhúsinu og vanefndir séu eingöngu okkar megin. Þessum yfirlýsingum hafna ég algjörlega,“ segir Linda en Baðhúsið hætti rekstri í vikunni.

Linda segir að vanefndir Regins varðandi afhendingu á húsnæðinu hafi valdið Baðhúsinu erfiðleikum sem urðu til þess að loka þurfti stöðinni. „Það er hálf ótrúlegt að lesa yfirlýsingar forstjórans um að staðið hafi verið við alla samninga. Starfsfólk og viðskiptavinir Baðhússins geta vitnað um að sannleikurinn er allt annar. Myndir og hljóðbrot segja allt aðra og sannari sögu um röð vanefnda, lélegs frágangs og truflana af hálfu Regins sem leiddu til þess að viðskiptavinir Baðhússins gátu aldrei notið kyrrðar og friðar fyrir háværum hamarshöggum, hávaða í borvélum, iðnaðarmönnum að störfum, ryki um allt, lekum gluggum og svo mætti áfram telja. Við slíkar aðstæður er ekki hægt að reka afslöppunar- og dekurmiðstöð.“

Linda og Baðhúsið eru nú að fara yfir réttarstöðu sína vegna málsins, meðal annars á grundvelli aðstöðumunar við gerð leigusamnings sem og aðra samningsgerð.

Linda sendi fjölmiðlum hljóðupptökur sem hún segir sýna svo ekki verði um villst að allt tal Reginsmanna um að húsnæði Baðhússins „hafi verið afhent tilbúið á réttum tíma og að rekstur hafi getað verið með eðlilegum hætti, er ekki á rökum reist.“

Linda segir öll gögn málsins sýna að vanefndir Regins séu meginorsök þess að rekstur Baðhússins gekk ekki upp.

„Ég ítreka það sem ég hef áður sagt; Við fengum húsnæðið afhent alltof seint og í ófullnægjandi ástandi á háannatíma sem varð þess valdandi að Baðhúsið missti bróðurpart tekna sinna er  gerði reksturinn þungbæran er leið á árið. Vegna þessa tekjumissis réð reksturinn m.a. ekki við greiðslu leigu og það eru vanefndirnar sem Reginn talar um og gekk hart eftir í að tryggja sér með fullu, þ.e. með riftun á samningi og hótun um útburð,“ er haft eftir Lindu í tilkynningunni.

Fréttir mbl.is:

Riftu samningi Baðhússins vegna vanefnda

Linda Pé lokar Baðhúsinu

Ljósmynd sem Linda Pétursdóttir sendi fjölmiðlum. Hún segir mynda tekna …
Ljósmynd sem Linda Pétursdóttir sendi fjölmiðlum. Hún segir mynda tekna eftir að Baðhúsið var opnað. Ljósmynd/Baðhúsið
Ljósmynd sem Linda Pétursdóttir sendi fjölmiðlum. Hún segir mynda tekna …
Ljósmynd sem Linda Pétursdóttir sendi fjölmiðlum. Hún segir mynda tekna eftir að Baðhúsið var opnað. Hér sést leki á gólfi í tækjasal.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK