Agnar Jón selur rúmlega 200 milljóna parhús

Agnar Jón Egilsson leikstjóri hefur sett parhús sitt á sölu.
Agnar Jón Egilsson leikstjóri hefur sett parhús sitt á sölu. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Leikstjórinn Agnar Jón Egilsson og Marian Chmelar matreiðslumaður hafa sett parhús sitt við Suðurgötu á sölu. Húsið er 293 fm að stærð en húsið sjálft var reist 1885. Agnar Jón stofnaði Leynileihúsið 2004 og hefur komið víða við í íslensku leiklistarlífi. 

Húsið við Suðurgötu er úr timbri en með steyptum kjallara. Húsið skiptist í kjallar, tvær hæðir og ris ásamt bílskúr sem er innréttaður sem íbúð sem hægt er að leigja út. 

Í eldhúsinu er hvít sprautulökkuð innrétting og risastór gaseldavél. Eldhúsið er í opnu rými sem teygir anga sína inn í stofu og borðstofu. Af þessari hæð eru svalir sem snúa út á Suðurgötuna en í kringum húsið er myndarlegur garður. 

Óskað er eftir tilboði í húsið en fasteignamat þess er 202.800.000 kr. 

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Suðurgata 8a

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál