Leikkonan Nicole Kidman og eiginmaður hennar Keith Urban leyndu ekki ást sinni á hvort öðru á rauða dregli Óskarsverðlaunanna í gær. Eins og sjá má á þessum myndum gátu þau ekki litið hvort af öðru.
Hún var glæsileg til fara í kjól frá Armani Privé sem var bæði skósíður og perluskreyttur. Hárið var tekið upp í hnakkanum og fingur og eyru skreytt með lúxusskartgripum.