Ætlar þú að biðja unnustu þinnar á næstunni og vantar hring? Ef þig langar til að vera mesti greifi landsins þá er Smartland búið að finna rétta hringinn. Það er að segja ef þú átt 18 milljónir á lausu.
Um er að ræða platínuhring með 4,5 karata demanti. Hringurinn er látlaus en steinninn er risastór eins og sést á myndinni. Í Bandaríkjununum tíðkast það að gefa verðandi eiginkonu demantshring þegar par trúlofar sig. Hvort þeir kosti yfirleitt 18 milljónir er ekki mjög líklegt en þetta er alla vega hugmynd ef einhver veit ekkert hvað hann á að gera við peningana sína. Og hringurinn er fallegur, því er ekki að neita!