Katrín í kjól frá Ecoutures

Katrín Jakobsdóttir geislaði í þessum dásamlega danska hönnunarkjól. Hér er …
Katrín Jakobsdóttir geislaði í þessum dásamlega danska hönnunarkjól. Hér er hún með Bjarna Benediktssyni og Sigurði Inga Jóhannssyni. Þeir voru í hefðbundnum karlafötum, annar í millibláu og hinn í dökkbláu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Forsætisráðherra Íslands, Katrín Jakobsdóttir, var glæsileg til fara í gær þegar nýja ríkisstjórnin var kynnt. Hún klæddist danskri hönnun. Um er að ræða svartan vel sniðinn kjól með beinu hálsmáli og kvartermum. Kjóllinn er skreyttur með grænum bryddingum á ermum og á axlastykki, aðsniðinn og lekker. 

Johanne Helger Lund er danskur fatahönnuður og eigandi merkisins Ecouture. Hún leggur áherslu á kvenlegar línur og mikið er gert úr mittislínunni. Hún sækir augljóslega innblástur í fimmta og sjötta áratuginn og er hugsað út í hvert einasta smáatriði. Þegar heimasíða Ecouture er skoðuð kemur í ljós að kjólarnir, pilsin og skyrturnar eru ákaflega eiguleg og falleg. 

Hér er hægt að skoða kjólana frá fyrirtækinu. 

Katrín yrði flott í þessum kjól frá Ecouture.
Katrín yrði flott í þessum kjól frá Ecouture.
Hér sést hálsmálið betur.
Hér sést hálsmálið betur. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál