Gekk allt upp sem við lögðum upp með

Jóhann Berg kemur Íslandi í 1:0.
Jóhann Berg kemur Íslandi í 1:0. AFP

„Það var löngu kominn tími á að ég skoraði og það var ansi sætt að gera það í þessum leik,“ sagði Jóhann Berg Guðmundsson eftir sigurinn magnaða gegn Tyrkjum í kvöld en Jóhann skoraði fyrsta mark leiksins.

„Þetta var frábær leikur að okkar hálfu. Það gekk allt upp sem við lögðum upp með. Við vissum nákvæmlega hvað þeir myndu gera og að vinna Tyrki á þeirra erfiða útivelli er frábær. Að fá svo að vita úrslitin hjá Finnum og Króötum gerði þetta kvöld svo enn betra.

„Núna er þetta í okkar höndum og þannig vildum við hafa hlutina. Við vorum vel undirbúnir að spila hávæða og læti eftir að hafa spilað við þá í Tyrklandi fyrir tveimur árum. En við vorum rosalega vel stemmdir og að vera 2:0 yfir eftir fyrri hálfleikinn gerði þetta þægilegra fyrir okkur og enn betra var þegar við skoruðum þriðja markið í byrjun seinni hálfleik. Þessi leikur og sigurinn á móti Englendingum á EM eru líklega bestu leikirnir sem þetta lið hefur spilað,“ sagði Jóhann Berg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert