„Ég hef enga trú á því að Stjarnan verði í toppbaráttu,“ sagði Helena Ólafsdóttir, umsjónarmaður Bestu markanna, í upphitunarþætti Dagmála fyrir Bestu deild kvenna í knattspyrnu þegar rætt var um Stjörnuna.
Stjörnunni er spáð 3. sæti deildarinnar í spá íþróttadeildar Árvakurs en liðið hafnaði í fjórða sæti deildarinnar á síðustu leiktíð.
„Þær hafa misst stóra leikmenn og það kemur mér á óvart hvernig þróunin hefur verið hjá félaginu,“ sagði Helena.
„Þær missa Katrínu og svo Jasmín núna og mér finnst þetta stórir leikmenn í liðinu,“ sagði Helena meðal annars.