Þrír Bestudeildarslagir í 16-liða úrslitum

Víkingar eru ríkjandi bikarmeistarar.
Víkingar eru ríkjandi bikarmeistarar. mbl.is/Óttar Geirsson

Stjarnan og KR munu etja kappi í 16-liða úrslitum bikarkeppni karla í knattspyrnu. Dregið var í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal í hádeginu í dag.

Alls fara þrír Bestu deildar slagir fram í 16-liða úrslitunum, sem verða leikin 16. og 17. maí næstkomandi.

Fylkir fær HK í heimsókn í Árbæinn og KA mætir Vestra á Akureyri.

Bikarmeistarar Víkings úr Reykjavík þurfa ekki að fara langt þar sem þeir mæta Grindavík í Safamýri, sem er skráður heimaleikur Grindavíkur.

Drátturinn í heild sinni (deildir liða utan Bestu deildarinnar í sviga):

Fram – ÍH (3)
Keflavík (1) – ÍA
KA – Vestri
Fylkir – HK
Stjarnan – KR
Afturelding (1) – Valur
Fjölnir (1) – Þór Ak. (1)
Grindavík (1) – Víkingur R.

Mbl.is fylgdist með drættinum í beinni textalýsingu.

Dregið í 16-liða úrslit bikarkeppni karla opna loka
kl. 12:15 Leik lokið Þá eru 16-liða úrslitin ljós. Leikirnir fara fram 16. og 17. maí. Takk fyrir samfylgdina.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert