Gunnleifur fagnar 30 ára edrúafmæli

Gunnleifur Vignir Gunnleifsson hefur nú snúið sér að þjálfun.
Gunnleifur Vignir Gunnleifsson hefur nú snúið sér að þjálfun. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Gunnleifur Vignir Gunnleifsson, fyrrverandi knattspyrnumarkvörður, fagnar í dag 30 ára edrúafmæli.

Gunnleifur, sem lagði hanskana á hilluna fyrir fjórum árum, tilkynnti um tímamótin á X-aðgangi sínum í dag.

Hann er 48 ára gamall og lék á ferlinum 304 leiki í efstu deild hér á landi auk 26 A-landsleikja. Einnig var Gunnleifur til skamms tíma á mála hjá Vaduz í Liechtenstein er liðið lék í efstu deild Sviss árið 2009.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert