Með sigri á Stjörnunni í sjöttu umferð í kvöld kæmust Framarar á toppinn í Bestu deild karla í knattspyrnu.
Liðin etja kappi í Garðabænum klukkan 19.15 í kvöld en báðum liðum hefur gengið vel í upphafi tímabils.
Stjarnan hefur unnið þrjá leiki í röð eftir að hafa tapað fyrstu tveimur og Framarar hafa einungis tapað fyrri Íslandsmeisturum Víkings R.
Fram er í þriðja sæti deildarinnar með tíu stig. Þá er Stjarnan í fimmta með níu.
Stjörnuliðið á einnig tækifæri á að komast á toppinn en þá þyrfti liðið að vinna Framara með sex marka mun.
Leikurinn verður í beinni textalýsingu á mbl.is.