Wigan samþykkti tilboð Chelsea í Moses

Victor Moses er á leið til Chelsea.
Victor Moses er á leið til Chelsea. Reuters

Nígeríski framherjinn Victor Moses er á leið til Chelsea frá Wigan en félögin hafa komist að samkomulagi um kaupverð sem talið er nema um níu milljónum punda.

Moses, sem er 21 árs og skoraði sex mörk í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð, á eftir að semja sjálfur um kaup og kjör við Chelsea en reikna má með að það gangi eftir og hann gangi til liðs við Evrópumeistarana.

Í tilkynningu frá Wigan segir að Chelsea hafi gert fjögur tilboð í Moses sem öllum hafi verið hafnað áður en ásættanlegt tilboð barst.

Moses þótti standa sig vel gegn Chelsea um síðustu helgi en Wigan tapaði þeim leik þó 2:0.

Chelsea hefur þegar fengið til sín Eden Hazard, Oscar og Marko Marin í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert