Kolbeinn meiddur á öxl - Ekki með um helgina

Kolbeinn Sigþórsson verður ekki með um helgina.
Kolbeinn Sigþórsson verður ekki með um helgina. Ljósmynd/Ajax

Íslenski landsliðsframherjinn Kolbeinn Sigþórsson er meiddur á öxl og er því ekki í leikmannahópi Ajax sem mætir NAC Breda í þriðju umferð hollensku úrvalsdeildarinnar á morgun.

Þetta kemur fram á Facebook-síðu Ajax en Kolbeinn sat á bekknum í síðasta leik eftir að hafa spilað 90 mínútur með íslenska landsliðinu gegn Færeyjum á miðvikudaginn í síðustu viku.

Kolbeinn var aftur á móti í byrjunarliði Ajax í fyrstu umferðinni gegn AZ og tryggði þar liði sínu stig með marki á 83. mínútu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert