Schneiderlin biður formlega um sölu

Morgan Schneiderlin hefur formlega óskað eftir því að vera seldur.
Morgan Schneiderlin hefur formlega óskað eftir því að vera seldur. AFP

Franski miðjumaðurinn Morgan Schneiderlin hefur formlega óskað eftir því að vera seldur frá Southampton. Hann hefur verið á mála hjá liðinu í sex ár, en hann kom frá Strasbourg árið 2008 og hefur síðan þá spilað 205 deildarleiki fyrir félagið.

Það hefur verð mikill flótti úr herbúðum Southampton í sumar og alls níu leikmenn verið seldir. Sjálfur tjáði Schneiderlin sig á Twitter í gær og opinberaði þá óánægju sína með stöðu mála hjá liðinu.

Enskir miðlar greindu í kjölfarið frá því að félagið hafi ekki standið við loforð um að hann mætti fara ef hann vildi það, en hann hefur nú opinberlega lagt fram ósk um sölu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert