Southampton fær Elia lánaðan

Eljero Elia.
Eljero Elia. AFP

Enska knattspyrnufélagið Southampton hefur gengið frá lánssamningi við Werder Bremen í Þýskalandi um að fá fær hollenska kantmanninn Eljero Elia lánaðan frá janúarbyrjun til vors.

Elia kemur til Southampton 3. janúar og samkvæmt BBC er líklegt að félagið gangi frá kaupum á honum í sumar.

Elia, sem lék áður með Den Haag, Twente, Hamburger SV og Juventus, er 27 ára gamall og á 27 landsleiki að baki fyrir Hollendinga. Hann spilaði 33 leiki með Bremen síðasta vetur og á samtals 60 leiki að baki með liðinu í efstu deild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert