Defoe orðinn leikmaður Sunderland

Jermain Defoe í búningi Sunderland.
Jermain Defoe í búningi Sunderland. Ljósmynd/twitter

Jermain Defoe er orðinn leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Sunderland en hann skrifaði nú í hádeginu undir þriggja og hálfs árs samning við félagið.

Defoe kemur til Sunderland frá Toronto FC en þessi knái framherji var áður í herbúðum Tottenham og skoraði grimmt fyrir Lundúnaliðið.

Bandaríski landsliðsmaðurinn Jozy Altidore fer á móti til Toronto FC en það er hluti af samningi félaganna. Altidore hefur alls ekki náð sér á strik með Sunderland en hann kom til þess frá hollenska liðinu AZ Alkmaar.

„Sunderland er frábært félag og ég hef alltaf notið að þess að spila á móti Sunderland því liðið á frábæran leikvang og góða stuðningsmenn,“ segir Defoe á vef Sunderland.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert