Suso farinn til AC Milan

Suso í leik með Liverpool.
Suso í leik með Liverpool. AFP

Enska knattspyrnufélagið Liverpool staðfesti í morgun að spænski miðjumaðurinn Suso væri farinn til AC Milan og væri laus allra mála hjá félaginu.

Suso, sem er 21 árs, kom kornungur til Liverpool fyrir fjórum og hálfu ári. Hann spilaði aðeins 21 leik með aðalliðinu og skoraði eitt mark, gegn Middlesbrough í deildabikarnum fyrr í vetur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert