West Ham vonast til að fá Fletcher

Darren Fletcher í leik með United.
Darren Fletcher í leik með United. AFP

West Ham gerir sér góðar vonir um að fá skoska landsliðsmanninn Darren Fletcher til liðs við sig frá Manchester United.

West Ham er með kláran þriggja og hálf árs samning við Fletche,r sem er þrítugur og á hálft ár eftir af samningi sínum við Manchester United.

Fletcher hefur ekki fengið mörg tækifæri í liði United undir stjórn Louis van Gaal en hann hefur aðeins byrjað inná í fjórum leikjum á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert