Alli samdi við Tottenham

Mauricio Pochettino stjóri Tottenham.
Mauricio Pochettino stjóri Tottenham. AFP

Tottenham gekk í kvöld frá kaupum á hinum 18 ára gamla Dele Alli miðvallarleikmanni MK Dons.

Alli skrifaði undir fimm og hálfs árs samning við Lundúnaliðið en talið er að kaupverð Tottenham á pilti geti endað í 5 milljón punda við tiltekinn leikjafjölda.

Alli mun vera í láni hjá MK Dons út tímabilið en eftir það mun hann hefja sinn feril hjá Tottenham.

Mörg félög hafa fylgst með þessum efnilega leikmanni sem hefur skorað 12 mörk í 32 leikjum fyrir MK Dons í C-deildinni í vetur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert