Southampton keypti Bertrand

Ryan Bertrand í leik með Southampton.
Ryan Bertrand í leik með Southampton. AFP

Southampton gekk í kvöld frá kaupum á bakverðinum Ryan Bertrand frá Chelsea og samdi við hann til hálfs fimmta árs, en hann hefur leikið sem lánsmaður með Southampton það sem af er vetri.

Bertrand er 25 ára gamall og hefur verið lengi í röðum Chelsea en verið lánaður margoft, m.a. til Nottingham Forest og Reading. Hann var hinsvegar í byrjunarliði Chelsea vorið 2012 þegar liðið vann Bayern München í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu.

Southampton styrkti líka leikmannahóp sinn fyrr í dag með því að fá serbneska miðjumanninn Filip Djuricic lánaðan frá Benfica í Portúgal. Djuricic er 23 ára og var í láni hjá Mainz í Þýskalandi fyrri hluta tímabilsins en hann hefur spilað 17 landsleiki fyrir Serbíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert