Liverpool eltist við markvörð Fiorentina

Neto og félagar fagna sigri á Roma í Evrópudeildinni á …
Neto og félagar fagna sigri á Roma í Evrópudeildinni á dögunum. AFP

Samkvæmt umboðsmanni brasilíska markvarðarins Neto, sem spilar með Fiorentina á Ítalíu, er enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool á höttunum eftir starfskröftum hans og hyggst þar með reyna að stela honum frá Ítalíumeisturum Juventus sem hafa verið orðaðir við kappann.

Þetta kemur fram í frétt Liverpool Echo um málið.

Samningur Neto rennur út í vor og samkvæmt umboðsmanninum Stefano Castagna er Neto á leið frá félaginu í vor, það sé það eina sem staðfest er.

Mörg félög hafa áhuga á markverðinum og staðfesti Castagna að eitt þeirra væri Liverpool. Neto er 25 ára gamall og hefur spilað 63 leiki fyrir Fiorentina við góðan orðstír.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert