Allen kominn til Stoke

Joe Allen er kominn til Liverpool.
Joe Allen er kominn til Liverpool. AFP

Enska úrvalsdeildarfélagið Stoke City tilkynnti í dag kaup á velska landsliðsmanninum Joe Allen en hann kemur frá Liverpool.

Allen fór mikinn með landsliði Wales á Evrópumótinu í Frakklandi í sumar en hann lék með Liverpool frá 2012.

Liverpool samþykkti 13 milljóna punda tilboð í Allen á dögunum og í dag voru kaupin staðfest af báðum félögum.

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, tilkynnti Allen fyrr í sumar að hann væri ekki partur af plönum hans og fann hann sér því nýtt félag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert