Coutinho fer ekki með Liverpool

Philippe Coutinho.
Philippe Coutinho. AFP

Brasilíumaðurinn Philippe Coutinho, leikmaður Liverpool, mun ekki fara með liðinu til Írlands þar sem liðið mun leika æfingaleik gegn Athletic Bilbao í Dyflinni.

Leikmannahópur Liverpool var tilkynntur í morgun á heimasíðu félagsins og þar kom fram að Brasilíumaðurinn sé með eymsli í baki og fari því ekki með.

Auk Coutinho mun Daniel Sturridge ekki vera með vegna meiðsla á læri og þá er fyrirliðinn Jordan Henderson veikur.

Fréttirnar um að Coutinho ferðist ekki með Liverpool í dag er aðeins olía á eld frétta þess efnis að kappinn sé mögulega á leið til Barcelona, og fylli að einhverju leyti í skarð Neymars, sem var keyptur til Paris Saint Germain á metfé í gær.

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur ítrekað sagt í fjölmiðlum að undanförnu að kappinn sé ekki til sölu.

Fréttir mbl.is: 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert