Coutinho grét að fá ekki að fara frá Liverpool

Philippe Coutinho verður áfram hjá Liverpool.
Philippe Coutinho verður áfram hjá Liverpool. AFP

Philippe Coutinho, leikmaður Liverpool, fór ekki frá félaginu í félagaskiptaglugganum í sumar sem nú er lokaður, en hann var þrálátlega orðaður við Barcelona í margar vikur.

Hann hafði sjálfur óskað eftir því að fara, en Liverpool vildi ekki selja hann og hafnaði meðal annars nokkrum háum tilboðum Börsunga í kappann. Hann var þess í stað með brasilíska landsliðinu og skoraði meðal annars gegn Ekvador daginn sem félagaskiptaglugganum var lokað.

Barcelona er sagt hafa gert eina lokatilraun til þess að kaupa Coutinho, en því var einnig hafnað. Eftir því sem spænski miðillinn Calcio Mercato greinir frá var Coutinho afar vonsvikinn með það og er liðsfélagi hans hjá Brasilíu hafa greint frá því að hafa séð hann grátandi þegar fréttirnar bárust.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert