Enska knattspyrnufélagið Manchester City varð fyrir áfalli í dag þegar að í ljós kom að helsti markaskorari kvennaliðsins verði frá keppni út tímabilið vegna meiðsla.
Khadija Shaw hefur gert 21 mark í 18 leikjum með City á leiktíðinni en hún varð fyrir meiðslunum í leik gegn West Ham síðastliðinn sunnudag.
Gareth Taylor þjálfari City staðfesti við fjölmiðla á blaðamannafundi í dag að tímabil Shaw væri á enda.