Arnór aftur á skotskónum

Arnór Ingvi Traustason.
Arnór Ingvi Traustason. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Arnór Ingvi Traustason, landsliðsmaður í knattspyrnu, skoraði sitt annað mark í þremur leikjum fyrir  Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Norrköping sótti þá Häcken heim til Gautaborgar og fór heim með góðan útisigur í farteskinu, 2:1. Arnór lék allan leikinn á miðjunni hjá Norrköping og kom liðinu í 2:0 á 59. mínútu leiksins.

Ísak Andri Sigurgeirsson var ekki í leikmannahópi Norrköping og Valgeir Lunddal Friðriksson hefur verið lengi frá hjá Häcken vegna meiðsla.

Norrköping er þar með komið í sjötta sæti deildarinnar með 10 stig, tveimur stigum minna en Halmstad sem er í öðru sæti með 12 stig. Malmö er með fullt hús, 18 stig, á toppnum eftir stórsigur á AIK í dag, 5:0.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert