Íslenskur sigur á Norðurlandamótinu

Blandað lið Stjörnunnar á Norðurlandameistaramótinu í Svíþjóð.
Blandað lið Stjörnunnar á Norðurlandameistaramótinu í Svíþjóð. Ljósmynd/Fimleikadeild Stjörnunnar

Blandað lið Stjörnunnar fagnaði sigri í gær á Norðurlandamóti unglinga í hópfimleikum sem fram fór í Lundi í Svíþjóð.

Stjarnan vann öruggan sigur og fékk samanlagt 49.050 stig en Sandnes Turnforening frá Noregi varð í öðru sæti með 46.250 stig. 

Halmstad Frigymnaster frá Svíþjóð hafnaði í þriðja sæti með 45.850 stig en Gerpla hafnaði í áttunda sæti með 40.900 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert