Tvö draumahögg á Jaðarsvelli

Sigurbjörn lengst til hægri ásamt þeim Ólafi Jóhannessyni og Sigurjóni …
Sigurbjörn lengst til hægri ásamt þeim Ólafi Jóhannessyni og Sigurjóni Arnarssyni sem léku saman fyrstu tvo dagana á Akureyri. Gárungarnir sögðu hæsta meðalaldurinn vera í þessum ráshópi í mótinu. Ljósmynd/GSÍ

Tveir kylfingar hafa farið holu í höggi á lokadegi Íslandsmótsins í golfi á Jaðarsvelli á Akureyri í dag. 

Sigurbjörn Þorgeirsson úr Golfklúbbi Fjallabyggðar fór holu í höggi á 14. holu og Viktor Ingi Einarsson úr GR lék það eftir á sömu holu rúmum klukkutíma síðar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert