Haraldur jafn í efsta sæti eftir annan hring

Haraldur Franklín Magnús keppir í Höfðaborg.
Haraldur Franklín Magnús keppir í Höfðaborg. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kylfingurinn Haraldur Franklín Magnús er jafn í efsta sæti eftir frábæran annan hring á Bain´s Whisky Cape Town-mótinu í Höfðaborg í Suður-Afríku í dag. 

Haraldur fór á kostum og lék annan hringinn á aðeins 66 höggum eða sex höggum undir pari. Lék hann fyrsta hringinn á þremur höggum undir pari og er því samtals níu höggum undir pari. Með þeim árangri er hann jafn í fyrsta sæti ásamt fimm öðrum. 

Haraldur fékk sex fugla og tólf pör. Þá tapaði hann ekki höggi á hringnum. Mótinu lýkur svo á sunnudaginn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert