„Gerist ekki sárara“

„Það gerist ekki sárara en að tapa svona, en við verðum að læra af þessum leik,“ sagði Sveinbjörn Pétursson markvörður Akureyrar eftir naumt tap gegn FH fyrir norðan í kvöld. FH gerði sigurmarkið á lokasekúndunni.

En Sveinbjörn lagði áherslu á að einvígið væri rétt að byrja. „Við mætum tvíefldir til leiks á föstudaginn,“ sagði markvörðurinn.

Sveinbjörn Pétursson markvörður Akureyrarliðsins.
Sveinbjörn Pétursson markvörður Akureyrarliðsins. mbl.is/Skapti Hallgrímsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert