Á leið í hreinan úrslitaleik

Guðmundur Þórður Guðmundsson er með Fredericia í harðri baráttu um …
Guðmundur Þórður Guðmundsson er með Fredericia í harðri baráttu um danska meistaratitilinn. Ljósmynd/Fredericia

Guðmundur Þórður Guðmundsson og lærisveinar hans í Fredericia lögðu Ringsted að velli, 29:25, í úrslitakeppninni um danska meistaratitilinn í handknattleik karla í dag.

Þegar ein umferð er eftir af úrslitariðlinum er GOG með 7 stig, Fredericia 6, Skjern 6 og Ringsted 4 stig.

Tvö efstu lið riðilsins komast í undanúrslitin en Fredericia fær GOG í heimsókn í lokaumferðinni um næstu helgi og það er því hreinn úrslitaleikur liðanna.

Einar Þorsteinn Ólafsson var að vanda í vörn Fredericia í dag en skoraði ekki í leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert