Þór í undanúrslit

Þórsarar fagna með stuðningsmönnum eftir leik.
Þórsarar fagna með stuðningsmönnum eftir leik. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Þórsarar frá Akureyri tryggðu sér sæti í undanúrslitum umspils í 1. deild karla í körfubolta á heimavelli sínum í kvöld. Leikurinn var hreinn úrslitaleikur í einvígi Þórs og Skallagríms.

Fremstur í flokki heimamanna var Harrison Butler sem skoraði heil 42 stig á einungis 33 mínútum. Jason Gigliotti skoraði 21 stig og tók 11 fráköst fyrir norðanmenn. Gestirnir úr Borgarnesi fengu 29 stig frá Darius Banks og 20 frá Nicolas Elame.

Þór vann einvígið 3:2 og mætir ÍR í undanúrslitum en í hinu einvíginu mætast Fjölnir og Sindri. Eitt þessara fjögurra liða vinnur sér sæti í úrvalsdeildinni. KR-ingar unnu 1. deildina og fóru beint upp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert