Vildu kaupa fyrir 20,6 milljarða í FL Group

Frá hluthafafundi FL Group í dag.
Frá hluthafafundi FL Group í dag. mbl.is/Golli

Hlutafjárútboði FL Group lauk í dag þar sem fjárfestar skráðu sig fyrir hlutafé í félaginu að andvirði 20,6 milljarða króna að nafnvirði. Til sölu voru nýir hlutir í félaginu fyrir 10 milljarða króna  en fjárfestum stóð einnig til boða að kaupa allt að 15 milljarða króna ef umframeftirspurn væri í útboðinu.

Í tilkynningu frá FL Group segir, að hlutaféð sem selt var skiptist þannig að nýir hlutir voru seldir fyrir um 10 milljarða króna og Baugur Group seldi hlutafé fyrir um fimm milljarða króna í samræmi við áður kynnta samninga um kaup FL Group á hlutum í fasteignafélögum og sjóðum af Baugi Group.

Í útboðinu voru seldir 680.272.109 nýir hlutir á genginu 14,7 krónur á hlut. Nýir hlutir svara til 7,36% af útgefnu heildarhlutafé FL Group, sem verður 9.925.000.682 kr. að nafnverði eftir útboðið.

Gert er ráð fyrir að nýju hlutirnir verði teknir til viðskipta í OMX kauphöllinni ekki  síðar en fimmtudaginn 27. desember 2007. Frá og með þeim degi verða þeir afhentir þeim kaupendum sem greitt hafa kaupverðið. Fjárfestum ber að greiða kaupverð hlutanna eigi síðar en föstudaginn 4. janúar 2008.

Hluthöfum félagsins mun gefast kostur á að taka þátt í forgangsréttarútboði á fyrsta ársfjórðungi næsta árs og skrá sig þar fyrir hlutafé að andvirði allt að þremur milljörðum króna á sama útboðsgengi og í hinu nýafstaðna útboði. Í kjölfar ársuppgjörs félagsins, sem væntanlegt er í byrjun febrúar 2007, verður tilkynnt um þann dag sem forgangsrétturinn miðast við.

Í kjölfar útboðsins og þegar Baugur Group hefur fengið útgefna hluti samkvæmt samningi við FL Group, verður eignarhlutur fimm stærstu hluthafa félagsins eftirfarandi:

Baugur Group hf. (BG Capital) 36,47%
Gnúpur fjárfestingafélag hf. 12,05%
Oddaflug B.V. 10,86%
Materia Invest ehf. 6,28%
Fons hf. 6,13%

Fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings banka hafði umsjón með útboðinu. 
 
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK