Fataverslunin F&F verður opnuð í verslun Hagkaups á annarri hæð í Kringlunni þann 8. nóvember næstkomandi. Um verður að ræða verð sem ekki hefur sést áður á Íslandi. Tilkynnt var um þetta á afkomufundi Haga í morgun, en félagið mun reka verslunina.
Í verslunum F&F er seldur tískufatnaður fyrir konur, karla og börn en keðjan hóf starfsemi árið 2001 og starfrækir á þriðja þúsund útsölustaði í yfir tuttugu löndum. Verslunin er hluti bresku verslunarkeðjunnar Tesco. „F&F er í stórsókn um heim allan og eru það miklar gleðifregnir fyrir Hagkaup, og ekki síður íslenska neytendur, að ná samningi við svo sterkan samstarfsaðila,“ segir í tilkynningu Haga.
Hagar reka 56 verslanir innan sex smásölufyrirtækja auk fjögurra vöruhúsa. Aðrar fataverslanir Haga eru Zara, Debenhams, Topshop, Evans, Dorothy Perkins, Karen Millen og Warehouse.