Í fjárlagafrumvarpi næsta árs er gert ráð fyrir að framlög til Ríkisútvarpsins lækki um 173,2 milljónir króna frá fjárlögum yfirstandandi árs.
Skýrist breytingin af tvennu. Í fyrsta lagi falla niður 181,9 milljóna króna tímabundið framlag sem veitt var í fjárlögum 2015 til að styrkja rekstur Ríkisútvarpsins.
Í öðru lagi er lögð til 8,7 milljón króna hækkun á framlagi í samræmi við innheimtar tekjur ríkissjóðs af útvarpsgjaldi á árinu 2016 sem áætlaðar eru tæpir 3,5 milljarðar króna.
Fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2016 gerir ráð fyrir þriðju hallalausu fjárlögunum í röð. Gert er ráð fyrir 15,3 milljarða króna afgangi á næsta ári.
Heildarfjárveiting til málefnaflokksins „Söfn, listastofnanir o.fl.“ sem RÚV tilheyrir hækkar um 185,4 milljónir króna frá gildandi fjárlögum þegar frá eru taldar almennar launa- og verðlagsbreytingar en þær nema alls 260,8 milljónum. Að þeim meðtöldum hækka útgjöldin um samtals 446,2 milljónir króna milli ára.
Frétt mbl.is: Afgangur og lækkun skulda