100 vinsælustu Ashley Madison lykilorðin

Ashley Madison
Ashley Madison AFP

Samkvæmt greiningu CynoSure voru vinsælustu lykilorðin á Ashley Madison síðunni jafn léleg og vinsælustu lykilorðin annars staðar á Internetinu. Hér er listi yfir þau eitt hundrað mest notuðu á síðunni.

CynoSure fór yfir 11,7 milljónir ódulkóðaðra lykilorða á síðunni og birti listann. Þrjú vinsælustu lykilorðin voru: 123456, 12345 og password.

Þessi lykilorð voru einnig vinsælustu lykilorð heims á síðasta ári.

Quartz greinir frá.

Samhliða fjölgun tölvuglæpa hafa netfyrirtæki sífellt verið að benda á mikilvægi öruggra aðgangsorða sem eru fyrsta vörnin gegn netþrjótum. T.d. er það talin góð venja að uppfæra aðgangsorðin reglulega og nota löng orð sem samanstanda af tölum, bókstöfum og táknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK