Yfirstjórn alþjóðasviðs Eimskips til Hollands

Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips.
Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í ljósi breytinga sem átt hafa sér stað í rekstrarumhverfi Eimskips og umfangi hefur félagið ákveðið að breyta stjórnskipulagi sínu svo það taki mið af breyttum áherslum og aukinni alþjóðastarfsemi. Breytingarnar munu taka gildi 1. júní 2016.

Félagið hefur á undanförnum misserum fjárfest í fyrirtækjum bæði hérlendis og erlendis og telur því nauðsynlegt að aðlaga skipulagið að breyttum tímum og auknum vexti. 

Meginbreytingarnar felast í því að nýju stoðsviði, mannauðssviði sem Elín Hjálmsdóttir mun stýra, er ætlað að samræma mannauðsstefnu og fyrirtækjamenningu Eimskips í þeim löndum þar sem félagið starfar. 

Elín hóf störf hjá Eimskip árið 2004 og starfaði í fyrstu við launa- og kjaramál og síðar ráðningar. Hún tók við starfi deildarstjóra ráðninga og starfsþróunar árið 2006 en árið 2008 tók hún við starfi starfsmannastjóra Eimskips á Íslandi. Í kjölfar skipulagsbreytinga árið 2009 tók hún við starfi starfsmannastjóra Eimskips-samstæðunnar. 

Yfirstjórn alþjóðasviðs, sem Bragi Þór Marinósson stýrir, flyst þá til Hollands til að fylgja eftir fjárfestingum sem félagið hefur lokið og eru í vinnslu. 

Skiparekstur félagsins mun heyra undir fjármála- og rekstrarsvið. Ásbjörn Skúlason starfar áfram sem framkvæmdastjóri þýska fyrirtækisins Eimskip & KCie með aðsetur í Þýskalandi, en fyrirtækið ber ábyrgð á rekstri, viðhaldi og endurnýjun skipaflota Eimskips. 

Skrifstofa forstjóra mun fara með lögfræðileg málefni, markaðs- og kynningarmál ásamt fjárfestatengslum og samræmingu á verkefnum tengdum fjárfestingum.

Elín Hjálmsdóttir stýrir nýju mannauðssviði.
Elín Hjálmsdóttir stýrir nýju mannauðssviði. mbl.is/Friðrik Tryggvason

Undir forstjóra félagsins, Gylfa Sigfússon, falla fimm meginsvið:

Fjármála- og rekstrarsvið (Finance and Operation), framkvæmdastjóri er Hilmar Pétur Valgarðsson. Meginábyrgð sviðsins er stýring fjármála Eimskips á alþjóðavísu, tryggingar og fasteignir, rekstur upplýsingakerfa auk þess sem skiparekstur fellur nú undir sviðið. 

Flutningasvið (North Atlantic Container Liner Services), framkvæmdastjóri er Matthías Matthíasson. Meginábyrgð sviðsins er sala og þjónusta í tengslum við áætlunarsiglingar félagsins, stórflutninga (bulk) til og frá Íslandi og flutninga- og gámastýring.

Innanlandssvið (Iceland Domestic Operations and Services), framkvæmdastjóri er Guðmundur Nikulásson. Meginábyrgð sviðsins er rekstur á innanlandskerfi Eimskips á Íslandi, þ.e. starfsstöðvum Eimskips um allt land, rekstur hafnarsvæða, flutningabifreiða, vöruhúsa, frysti- og kæligeymslna sem og ferjurekstur.

Alþjóðasvið (International Operations and Logistics), framkvæmdastjóri er Bragi Þór Marinósson. Meginábyrgð sviðsins er rekstur starfsstöðva Eimskips erlendis og flutningaþjónustu um heim allan. Aðalskrifstofa alþjóðasviðs mun verða staðsett í Hollandi. 

Mannauðssvið (Human Resources), framkvæmdastjóri er Elín Hjálmsdóttir og kemur hún ný inn í framkvæmdastjórn. Meginábyrgð sviðsins er stefnumótun, framkvæmd og eftirfylgni mannauðsmála hjá Eimskip á alþjóðavísu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK