Skattabreytingar gerist hratt

Drífa Snædal og Sólveig Anna Jónsdóttir skrifa undir yfirlýsinguna.
Drífa Snædal og Sólveig Anna Jónsdóttir skrifa undir yfirlýsinguna. mbl.is/​Hari

Skattabreytingar þurfa að koma hratt til framkvæmda og án undanbragða. Fulltrúar vinnandi fólks munu ekki sætta sig við að þær verði innleiddar á næstu þremur árum.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Drífu Snædal, forseta ASÍ, Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar, og efnahags- og skattanefnd ASÍ.

„Á  þeim félagsfundum sem undirritaðar hafa setið, þar sem samningarnir og yfirlýsing stjórnvalda hefur verið kynnt, leggja félagsmenn mikla áherslu á skjót svör af hálfu stjórnvalda. Öll spjót standa því á stjórnvöldum að svara kalli vinnandi fólks og upplýsa um það hvernig fyrirhugaðar skattalækkanir verða framkvæmdar,“ segir í tilkynningunni.

Þar kemur einnig fram að grundvöllur samninganna sem eru í atkvæðagreiðslu hjá félagsmönnum stéttarfélaganna sé meðal annars loforð um skattalækkanir til þeirra sem lægstar tekjur hafa.

„Í ljósi þeirra alvarlegu breytinga sem átt hafa sér stað á skattkerfinu á síðustu áratugum, þar sem skattar hafa verið færðir af tekjuháum hópum yfir á tekjulága, krafðist verkalýðshreyfingin vegna augljósra sanngirnissjónarmiða fjögurra þrepa skattkerfis auk leiðréttingar á fyrrnefndri skattatilfærslu. Lengra varð ekki komist að þessu sinni en barátta Alþýðusambandsins fyrir réttlátu skattkerfi heldur áfram,“ segir í yfirlýsingunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert