Mikið í ám og lækjum og eykst á morgun

Veðurstofan biður ferðafólk að sýna aðgát á morgun við ár …
Veðurstofan biður ferðafólk að sýna aðgát á morgun við ár og vatnsföll. Mynd úr safni. mbl.is/Helgi Bjarnason

Veðurstofan vekur athygli á því að vegna rigningartíðar undanfarna daga sé nú há vatnsstaða í ám og lækjum. Þá sé talsverðri úrkomu spáð víða um land á morgun og megi því búast við auknu afrennsli vegna þess. Er ferðafólk á hálendinu, Snæfellsnesi, Suðurlandi og Suðausturlandi beðið að sýna aðgát við vatnsföll og vöð vegna þessa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert