Íslenskir sprengjusérfræðingar þjálfa úkraínska hermenn

Utanríkisráðuneytið í samstarfi við sérfræðinga séraðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar hafa annast undirbúning …
Utanríkisráðuneytið í samstarfi við sérfræðinga séraðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar hafa annast undirbúning og framkvæmd verkefnisins. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Þjálfun úkraínskra hermanna á sviði sprengjuleitar og sprengjueyðingar hófst í Litháen í vikunni. Um er að ræða samstarfsverkefni Norðurlandanna og Litháen og annast litháískir, norskir, sænskir og íslenskir sprengjusérfræðingar framkvæmdina.

Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að markmið verkefnisins sé að gera úkraínska hernum betur kleift að finna og eyða ósprungnum sprengjum í Úkraínu í kjölfar innrásar Rússlands.

„Talið er að ósprungnar sprengjur af ýmsu tagi fyrirfinnist á allt að fimmtungi úkraínsks landssvæðis,“ segir í tilkynningunni en þjálfunin eru liður í því að styrkja varnarsveitir Úkraínu og draga úr hættu á því að íbúar landsins verði fyrir skaða.

Hver kennslulota fimm vikur

Utanríkisráðuneytið í samstarfi við sérfræðinga séraðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar hafa annast undirbúning og framkvæmd verkefnisins, en þeir hafa á undanförnum árum sinnt verkefnum á vegum Atlantshafsbandalagsins á sviði þjálfunar sprengjusérfræðinga, meðal annars í Írak og Jórdaníu.

Hver kennslulota stendur yfir í fimm vikur og stefnt er að því að ljúka í það minnsta fjórum lotum á þessu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert