Zlatan heldur áfram að minna á sig

Zlatan Ibrahimovic
Zlatan Ibrahimovic AFP

Zlatan Ibrahimovic skoraði tvö mörk í 3:0-sigri LA Galaxy á Real Salt Lake í bandarísku deildinni í fótbolta í nótt. Eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði Zlatan tvö mörk í þeim síðari og kom liði sínu í 2:0.

Zlatan, sem gekk í raðir Galaxy fyrri á þessu ári, hefur því skorað sjö mörk í 11 leikjum í bandarísku deildinni.

Á þeim stutta tíma sem hann hefur verið í landinu hefur hann því skorað fullt af mörkum og nokkur þeirra glæsileg ásamt því að fá rautt spjald fyrir að slá mótherja utan undir. 

Hér að neðan má sjá mörkin sem Zlatan skoraði í nótt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert