Nítján ár á milli hjá Inga

Ingi Þór Steinþórsson fagnar í kvöld.
Ingi Þór Steinþórsson fagnar í kvöld. mbl.is/Hari

Ingi Þór Steinþórsson stýrði KR til sigurs á Íslandsmótinu í körfuknattleik í kvöld en hann gerði það einnig árið 2000. Helgi Már Magnússon og Pavel Ermolinskij urðu meistarar í sjöunda sinn. 

Eins og fram hef­ur komið setti KR met með því að vinna titil­inn sjötta árið í röð. Í fyrstu fimm skipt­in und­ir stjórn Finns Freys Stef­áns­son­ar og nú undir stjórn Inga Þórs. 

Ingi hefur gert þrjú lið að meisturum, tvö karlalið og eitt kvennalið. Karlalið KR 2000 og 2019 en hann gerði karlaliðs Snæfells að meisturum 2010. Þá gerði hann kvennalið Snæfells að meisturum í kvennaflokki þrjú ár í röð frá 2014 - 2016. Því má bæta við að Ingi var aðstoðarþjálfari KR þegar liðið varð meistari 2009. 

Helgi Már Magnús­son bætti við sín­um sjöundaÍslands­meist­ara­titli. Hann vann fyrst sem ung­ur leikmaður árið 2000 og aft­ur þegar KR stillti upp draumaliði sínu árið 2009. Hann vann einnig 2014, 2015 og 2016 en hugðist þá hætta vegna bú­ferla­flutn­inga til Banda­ríkj­anna. Hann var með í úrslitakeppninni í fyrra þegar KR vann og flutti nú heim um áramót. 2007 og 2011 var Helgi í at­vinnu­mennsku. 

Pavel Ermol­in­skij hef­ur einnig sjö sinn­um orðið Íslands­meist­ari. Síðustu sex skipti en einnig árið 2011. Hann er eini leikmaðurinn sem unnið hefur með KR sex ár í röð. Brynjar Þór Björnsson og Darri Hilmarsson unnu fimm ár í röð en hurfu á braut síðasta sumar. 

Fyrirliðinn Jón Arn­ór Stef­áns­son hef­ur fimm sinn­um orðið meist­ari með KR en hef­ur aðeins leikið sjö tíma­bil hér­lend­is, þrjú þeirra ung­ur að árum. Fyrsta titil­inn vann Jón sem ung­ur leikmaður árið 2000 og aft­ur 2009 þegar hann kom heim úr at­vinnu­mennsku í eitt ár. Jón flutti heim sum­arið 2016 og hef­ur unnið síðustu þrjú ár með KR. 

Sig­urður Þor­valds­son varð meist­ari í fjórða sinn og er eini leikmaðurinn í liðinu sem unnið hef­ur með tveim­ur liðum. Sig­urður, sem fékk lítið að spreyta sig að spreyta sig að þessu sinni, hef­ur unnið síðustu þrjú árin með KR en varð einnig meist­ari með Snæ­felli árið 2010.

Björn Kristjánsson varð meistari með KR í fjórða skipti: 2015, 2016, 2018 og 2019 en 2017 lék hann með Njarðvík.  

Finnur Atli Magnússon var meistari með KR í þriðja skipti: 2011, 2015 og 2019 en í millitíðinni hefur hann leikið með Snæfelli og Haukum. 

Kristófer Acox varð meistari með KR þriðja árið í röð. 

Emil Barja varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn en hann lék áður með Haukum og komst einu sinni í úrslit með liðinu. 

Vilhjálmur Jensson hefur verið í leikmannahópi KR öll sex árin en ekki komið mikið við sögu. 

Pavel Ermolinskij fagnar í kvöld en hann lék síðustu mínútuna …
Pavel Ermolinskij fagnar í kvöld en hann lék síðustu mínútuna í leiknum. Hann gat ekki beitt sér vegna meiðsla í kálfa en hann meiddist í þriðja leiknum. mbl.is/Hari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert