„Það er skiljanlegt að þolinmæði þeirra sé lítil“

Örn Viðar Skúlason.
Örn Viðar Skúlason.

Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri Þórkötlu, segir skiljanlegt að þolinmæði Grindvíkinga sé lítil og að þau hafi vonast eftir hraðari afgreiðslu sinna umsókna hvað varðar húsnæðismál.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem félagið hefur sent frá sér. 

„Við vitum að þorri Grindvíkinga er í þröngri stöðu í sínum húsnæðismálum. Margir eru búnir að reyna að festa sér eignir annar staðar og bíða eftir að geta selt. Það er skiljanlegt að þolinmæði þeirra sé lítil og að þau hafi vonast eftir hraðari afgreiðslu sinna umsókna. Fasteignaviðskipti eru í eðli sínu flókið ferli og það er margt sem við þurfum að huga að,“ segir Örn í tilkynningunni. 

Mjög flókið verkefni

Hann bendir á, að verkefnið í Grindavík sé enn flóknara en hefðbundin fasteignaviðskipti þar sem Þórkatla annist yfirtöku og uppgjör lána fyrir hönd seljenda og þurfi að útfæra það vinnulag í samráði við 18 ólíka lánveitendur.

„Það er afar mikilvægt að það ríki jafnræði meðal Grindvíkinga gagnvart þessari björgunaraðgerð stjórnvalda og mörg hundruð einstök fasteignaviðskipti, þar sem málin eru oft mjög ólík, fela í sér áskoranir að þessu leyti. Við erum að vinna í þessu mjög þétt en rétt eins og í fasteignaviðskiptum almennt þá getur sitthvað komið upp sem tefur. Við viljum forðast í lengstu lög að eitthvað fari úrskeiðis við kaup þessara fasteigna sem leiða kann til eftirmála síðar,“ skrifar hann.

Taka skilaboðum Grindvíkinga sem hvatningu

Þá segir hann, að algeng spurning sem félagið hafi fengið sé hvort fólk muni fá afgreiðslu sinna mála í sömu röð og það sótti um. Svarið við því sé að Þórkatla er almennt að taka umsóknir til skoðunar í þeirri röð sem þær bárust, en þar sem málin séu misflókin, þá sé ekki hægt að ábyrgjast að afgreiðsla þeirra verði í sömu röð.

„Við þurfum að gæta mjög vel að því að lögunum sé fylgt og að þessum tugum milljarða sem Þórkatla hefur til ráðstöfunar verði varið á þann hátt sem Alþingi ákvað. Við virðum rétt Grindvíkinga til að láta í sér heyra og við heyrum svo sannarlega í þeim. Við tökum skilaboðunum sem frá þeim berast sem hvatningu til að vinna verkið hratt, en við vitum líka að bæði Grindvíkingar og aðrir landsmenn vilja að við vinnum það vel.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert