Það væsir ekki um ofurfyrirsætuna Alessöndru Ambrosio sem sendi á dögunum sjóðheitar kveðjur frá ströndinni á Spáni með glæsilegri myndaröð á Instagram.
Rúmur mánuður er liðinn frá sambandsslitum fyrirsætunnar við silfurrefinn Richard Lee, en þau höfðu verið saman í tvö ár að því er fram kemur á vef Daily Mail.
Af myndum að dæma hefur Ambrosio notið til hins ýtrasta á Ibiza á Spáni undanfarna daga. Hún hefur verið dugleg að birta sjóðheitar myndir af sér í góðra vina hópi á Instagram. Hún tók svo októbermánuði fagnandi á ströndinni.